Flottur bær
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir
Sumar og sól. Kosið í dag. Ég lít í kringum mig í sólskinsböðuðum Ísafjarðarbæ og sé svo ótalmargt jákvætt og flott. Ég sé nýbyggingu við Grunnskólann á Ísafirði, göngustíg inn í Fjörð, annan í vinnslu út í Hnífsdal, gervigrasvöll á Torfnesi, sparkvelli í hverju byggðarlagi, íþróttahús á Suðureyri, endurnýjun hafnarmannvirkja í hverju byggðarlagi. Framhjá mér ganga menntaskólanemarnir, sumir í framboði, öll glæsilegt ungt fólk með stóra drauma og framtíðarsýn. Og þarna eru háskólanemarnir líka, sumir erlendir að sækja menntun sína alla leið til Ísafjarðarbæjar.
Ég sé húsin sem einstaklingar eru að gera upp hvert af öðru af dugnaði og hörku. Mig dreymir um að geta stutt við svona framtak sem bæjarfulltrúi. Ég vil leggja mitt af mörkum í þágu íbúanna. Mig langar að halda áfram að gera flottan bæ enn betri. Mig langar til að fá tækifæri til að nýta krafta mína til áframhaldandi uppbyggingar með jákvæðni, bjartsýni og framtíðarsýn að vopni.
Ég óska eftir stuðningi til þess. X-D á kjördag.
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir.

