Greinar
Staðlausir stafir Í-listans um hjúkrunarheimili
Birna Lárusdóttir / Svanlaug Guðnadóttir
Undirritaðar sátu sameiginlegan fund framboðslistanna í Ísafjarðarbæ í Edinborgarhúsinu í gærkvöldi og í framhaldinu sjáum við okkur knúnar til að leiðrétta þær rangfærslur sem frambjóðendur Í-listans héldu þar á lofti um málefni hjúkrunarheimilis á Ísafirði. Það er sorglegt að þurfa að grípa til pennans af svona tilefni – nær væri á þessum lokaspretti kosningabaráttunnar að nota kraftana í uppbyggilega umræðu um framtíð bæjarins okkar í staðinn fyrir að eyða dýrmætum tíma í að leiðrétta staðlausa stafi úr herbúðum Í-listans.Að tala gegn betri vitund
Á fundinum héldu frambjóðendur Í-listans því ítrekað fram að engin umsókn um byggingu hjúkrunarheimilis hefði farið frá Ísafjarðarbæ í Framkvæmdasjóð aldraðra. Þetta er rangt. Umsókn um hjúkrunarheimili var síðast send sjóðnum 15. janúar s.l. en í mörg ár hafa bæði umsóknir og erindi verið send með reglulegu millibili vegna þessa brýna hagsmunamáls. Þetta veit Sigurður Pétursson, oddviti Í-listans, og hann talar gegn betri vitund þegar hann heldur öðru fram. Hann situr í bæjarráði ásamt undirrituðum og fylgdi málefninu sjálfur eftir með okkur á fundi með Árna Páli Árnasyni, félagsmálaráðherra, síðastliðið haust - nánar tiltekið 3. nóvember 2009. Fundurinn var gagnlegur og þar lögðum við þunga áherslu á nauðsyn þess að ríkið kæmi strax að þessum málum með okkur. /Pages/26?NewsID=139918
Fullnægjandi umsókn liggur fyrir
Við fengum það staðfest í félagsmálaráðuneytinu í morgun að umsóknin barst á tilgreindum tíma og hún er með öllu fullnægjandi. Allt tal um annað er úr lausu lofti gripið og til minnkunar þeim sem reyna að slá ryki í augu kjósenda nokkrum klukkustundum fyrir kosningar. Það er nú í höndum ríkisvaldsins að ákvarða næstu skref og er það einlæg von okkar að málatilbúnaður Í-listans verði ekki til þess að eyðileggja fyrir okkur það ferli sem nú er komið vel á veg.
Heimaþjónusta og heimahjúkrun til fyrirmyndar á landsvísu Á umliðnum árum hafa bæjaryfirvöld ítrekað rætt við ríkisvaldið um nauðsyn þess að hér rísi hjúkrunarheimili. Vandamálið hefur fyrst og fremst verið að við höfum lengst af ekki getað sýnt fram á þörfina fyrir hjúkrunarheimili. Í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld í Ísafjarðarbæ höfum við á sama tíma byggt upp heimaþjónustu og heimahjúkrun sem hefur hlotið viðurkenningu á landsvísu.
Sú fyrirmyndarþjónusta sem hér er veitt gerir einstaklingum kleift að vera eins lengi í eigin húsnæði og kostur er. Þetta kann að vera ein ástæða þess að í sveitarfélaginu okkar hafa ekki verið nægjanlega margir skilgreindir í brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými til að ríkisvaldið teldi það réttlæta byggingu fleiri rýma. Margir hafa ekki viljað ganga í gegnum vistunarmatsferlið sem nauðsynlegt er til að komast á hjúkrunarheimili og reynir heldur að vera heima eins lengi og kostur er.
Á grundvelli þeirra tölulegu upplýsinga sem liggja fyrir hefur ráðuneytið talið þau hjúkrunarrými nægja sem eru til staðar á ýmsum stöðum í sveitarfélaginu, s.s. á Þingeyri, Flateyri og Ísafirði. Nú er þetta að breytast. Stöðugt fjölgar í hópi þeirra sem þurfa á þessari lausn að halda og fyrst núna getum við sýnt fram á það með haldbærum rökum að tími sé kominn til að reisa hjúkrunarheimili. Biðlistinn er að verða nógu langur.
Við skorum á fulltrúa minnihlutans og frambjóðendur Í-listans að hætta skítkasti og dylgjum. Einhendum okkur frekar í að þrýsta öll sem eitt á að hjúkrunarheimili rísi á Ísafirði á næstu misserum. Þannig náum við árangri.
Svanlaug Guðnadóttir, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Birna Lárusdóttir, varaformaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.

