Ísafjarðarbær
Greinar
  • gisli

Félagsmál og velferð í Ísafjarðarbæ

Gísli H. Halldórsson

Nú er komið að lokum kjörtímabils og sveitarstjórnarkosningar á næsta leiti. Þar sem ég hef gegnt hlutverki formanns félagsmálanefndar allt þetta kjörtímabil er kannski við hæfi að ég geri í stuttu máli grein fyrir umfangi félagsmála í Ísafjarðarbæ. Ekki ætla ég að tæma þau mál heldur gera stutta grein fyrir helstu atriðum.

Auk skólamála og annarra menntamála er fjölmörgum félagslegum málefnum sinnt af Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Helstu verkefni skrifstofunnar eru að halda uppi öryggisneti velferðarsamfélagsins, sinna ýmsum málefnum aldraðra og barna og jafnréttismál. Um næstu áramót munu svo málefni fatlaðra bætast við þessi verkefni.

Félagsauður

Það er kjarni sjálfstæðisstefnunnar að virkja þann kraft sem í fólki býr og byggja með því heilbrigt og kraftmikið samfélag. Lykilhugtak í félagsmálastefnu bæjarins, sem mótuð var á liðnu kjörtímabili, er hugtakið félagsauður, sá auður sem verður til í samfélagi þegar fólk á í greiðum og skapandi samskiptum. Að efla og nýta þennan auð sem í samfélaginu býr gerist m.a. með því að greiða fyrir samskiptum fólks og auka skilning þess á aðstæðum hvers annars. Einnig er mikilvægt að hvetja einstaklinga til ábyrgðar á eigin lífi og vinna að því að auðvelda þeim að taka virkan þátt í samfélaginu. Með þeim hætti ætti enginn að þurfa að vera byrði á samfélaginu heldur geta allir verið máttarstólpar á sinn hátt.

Málefni fatlaðra

Málefni fatlaðra er mjög stór málaflokkur og mikið liggur við að vel takist til við flutninginn um næstu áramót. Vonast er til að bæta megi þjónustu enn frekar og að möguleikar skapist til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum. Einnig á með flutningnum að tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, að samhæfing verði bætt og dregið úr skörun ábyrgðarsviða stjórnsýslustiga. Með flutningnum er jafnframt vonast til að sveitarstjórnarstigið styrkist og verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga verði einfölduð.

Sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ leggja ofuráherslu á sem átakaminnsta tilfærslu þegar flutningurinn á sér stað. Ekki á að umturna þjónustunni sem gengur að mörgu leyti mjög vel. Fyrst og fremst þarf að tryggja að kunnáttu og reynslu verði viðhaldið og þjónustan haldi snurðulaust áfram. Við munum því eins og kostur er óska eftir starfskröftum þeirra sem nú starfa í greininni.

Aldraðir

Áframhaldandi þróun heimaþjónustu aldraðra og samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar eru mikilvæg framfaramál. Þetta er liður í þeirri stefnu sem nú vex fiskur um hrygg í íslensku þjóðfélagi, að draga úr stofnanavæðingu og gera fólki kleift að búa sem allra lengst í eigin húsnæði. Verið er að vinna í þessum málum á vettvangi félagsmálanefndar og verður spennandi að halda því verki áfram.

Þrátt fyrir þessa þróun mála er nauðsyn á byggingu hjúkrunarheimilis. Þar þarf ríkisvaldið að koma að málum. Lengi hefur verið þrýst á um að því máli verði þokað áfram og vinna lögð í að afla skilnings á þörfinni. Áfram þarf að leggja mikla áherslu á að vinna málinu framgöngu þannig að hér rísi hjúkrunarheimili á næsta kjörtímabili.

Kraftmikið tómstundastarf aldraðra er liður í auðugra samfélagi. Því er mikilvægt að reynt sé að efla það með tiltækum ráðum. Nú hefur verið samþykkt að félag eldri borgara á Ísafirði fái húsnæði í kjallara Hlífar, þá hafa einnig verið kynntar metnaðarfullar hugmyndir um dagvist aldraðra sem ganga út á að virkja þátttakendur eins og kostur er.

Börnin

Eitt allra mikilvægasta verkefni okkar er að gæta að velferð barnanna. Þjónusta við þarfir þeirra, almennar og sérstakar, og ráðgjöf og fræðsla til foreldra eru atriði sem við þurfum að leggja áherslu á. Forvarnir eru mikilvægar og þar er þátttaka í íþróttum og félagasamtökum vænleg til árangurs.

Samstarfið sem tekist hefur á milli bæjaryfirvalda og Héraðssambands Vestfirðinga, HSV, hefur vakið athygli á landsvísu. Þetta samstarf byggir á grunni samstarfssamnings Ísafjarðarbæjar og HSV. Á síðasta héraðsþingi HSV sáu aðildarfélögin sérstaka ástæðu til að þakka hið góða samstarf. Frekari þróun starfsins er fyrirhuguð og teljum við að þarna sé sannarlega rétti vettvangurinn til að verja þeim fjármunum sem við látum í forvarnir og æskulýðsstarf.

Velferð íbúa

Mig langar að birta hér niðurlagið úr stefnu Ísafjarðarbæjar í félags- og velferðarmálum:
Kjarninn í markmiðum þessarar stefnu er ósk um velferð og farsæld íbúa Ísafjarðarbæjar. Allir íbúar eiga kröfu til fullra mannréttinda og jafngildrar þátttöku í samfélaginu. Með stuðningi, fræðslu og forvörnum má stuðla að lífsgleði og heilsu íbúanna og þar með efla félagsauðinn sem er hornsteinn samfélagsins.

Lífsgleði er eitt af grunngildum góðra lífskjara. Með hvatningu og félagslegum stuðningi má efla þátttöku og virkni í samfélaginu. Virkni einstaklinga er best til þess fallin að rjúfa félagslega einangrun.

Í umhverfi Ísafjarðarbæjar er gott framboð á leiðum til hreyfingar og útivistar. Með fjölbreyttu framboði á tómstundum og annarri afþreyingu ásamt þátttöku íbúanna verður best stuðlað að bættri lýðheilsu.

Gísli H. Halldórsson er formaður félagsmálanefndar og skipar 2. sæti á lista sjálfstæðismanna í komandi kosningum.





 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica