Stefnumótunarfundur D-listans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ buðu til opins fundar laugardaginn 20. mars um málefnaskrá flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Fundurinn var haldinn í Orkubúshúsinu í Engidal og markaði þessi fundur upphaf málefnastarfs listans.
Góðmæting var á fundinn sem hófst uppúr níu um morguninn og lauk þegar langt var liðið á kvöld.. Tekist var á um stefnu sjálfstæðismanna til næstu fjögurra ára í bæjarmálum í Ísafjarðarbæ.
Boðið var upp á skyr og rjóma í hádeginu og fiskisúpu í kvöldverð. Eftir fjörugar umræður um stefnumál framboðsins þar sem alvara málsins réði för var slegið á léttari strengi í lokin. Vegarnesti þessa fundar hefur síðan verið leiðarljós í stefnumótunarvinnu framboðsins sem lauk með fjölmennum fundi fulltrúa sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ sem haldin var 3. maí s.l., þar sem málefnaskráin var samþykkt.
