Fróðlegt og nærandi | „Er hægt aðreka sveitarfélag á Íslandi?“
Fyrirlesari: Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
Hádegisfyrirlestraröðin „Fróðlegt og nærandi“ hóf göngu sína á nýjan leik í janúar. Í hádeginu á þriðjudögum verður boðið upp á fjölbreytta fyrirlestra í Valhöll ásamt nærandi hádegisverði á góðum kjörum frá HaPP.
Þriðjudaginn 21. febrúar kl. 12.00, verður Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, með fyrirlestur undir yfirskriftinni: „Er hægt að reka sveitarfélag á Íslandi?“
HaPP hefur það metnaðarfulla markmið að stuðla að auknu heilbrigði Íslendinga með því að bjóða upp á bragðgóðan og hollan mat þar sem áhersla er lögð á gæði og virkni fæðunnar á líkamann til að fyrirbyggja og meðhöndla lífstílssjúkdóma, www.happ.is
Allir velkomnir!
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins

Reykjavik