Bjarni Benediktsson: „Lykilatriði að skapa störf “
Sjálfstæðisflokkurinn mun standa gegn niðurskurði í menntamálum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt í dag ræðu á Alþingi um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Bjarni sagði að sá árangur sem náðst hefði væri þrátt fyrir ríkisstjórnina, ekki fyrir tilstilli hennar. Þar hafi fyrst og fremst utanaðkomandi áhrif, eins og sveigjanleiki krónunnar, spilað inn í. Bjarni sagði: „Það er þrátt fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar sem staðan er aðeins betri en óttast var.“ Skatthækkanir ríkisstjórnarinnar gera hinsvegar ekkert til að bæta ástandið. Þær eru frekar til skaða en hitt. Hann lagði áherslu á að ríkisstjórnin yrði að gera sér grein fyrir því að það væri í hinu almenna hagkerfi sem virðisaukinn yrði til. Því þar yrðu til tekjurnar sem velferðin er byggð á. Bjarni benti á að á örfáum vikum væri hægt að gjörbreyta horfum í atvinnumálum, ekki bara á Suðurnesjunum þar sem allan stuðning vantar frá ríkisstjórninni, heldur um allt land. Bjarni sagði: „Það er hlutverk stjórnvalda að skapa heilbrigð skilyrði til atvinnuuppbyggingar.“ Hann bætti við að mikilvægur liður í því við núverandi aðstæður væri að lækka vexti enn frekar og setja í algeran forgang að afnema gjaldeyrishöftin. Hann tók líka fram í ræðunni að aukið aðhald í ríkisrekstir væri nauðsynlegt og að þar yrði að forgangsraða.
Bjarni benti á að Sjálfstæðisflokkurinn muni standa gegn niðurskurði í menntamálum.
Lykilatriði væri þó að skapa störf.
