Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar


Samband ungra sjálfstæðismanna afhenti frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar föstudaginn 27. ágúst. Verðlaunin hlutu Brynjar Níelsson, lögmaður, og InDefence samtökin.
Verðlaunin eru veitt einstaklingi og samtökum sem þykja hafa látið gott af sér leiða á opinberum vettvangi, óháð stjórnmálaskoðunum eða þátttöku. Ungir sjálfstæðismenn segja að InDefence séu þau samtök sem eigi hvað mestan heiður skilið fyrir að hindra að gengið yrði að ólögmætum og ósanngjörnum kröfum Breta og Hollendinga gegn þjóðinni í Icesave málinu. Þá hafi Brynjar Níelsson verið ötull baráttumaður gegn pólitískum rétttrúnaði og staðið vörð um grunngildi réttarríkisins í opinberri umræðu. Þá hefur hann sýnt mikið hugrekki í baráttu gagnvart fólki, sem stjórnmálastéttin þori ekki að andmæla af ótta við óvinsældir.
