Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Fréttir
  • gudlaugur-thor-bw

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins telur upp staðreyndir um ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

11.8.2010

Forstöðumanni ríkisstofnunar hótað brottrekstri fyrir að sinna starfi sínu af samviskusemi og nákvæmni.

Aðilum sem kaupa afurðir af bændum utan kerfis hótað fangelsisvist.

Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu ofsóttur.

Ráðherra reynir að telja þjóðinni trú um að hann hafi ekki séð lögfræðiálit frá Seðlabanka, sem  þó kom í ráðuneytið, þar sem ein tegund lánastarfsemi er talin ólögleg.

Skyndiákvörðun eins ráðherra setur ríkisstofnun í þrot.

Stefna ríkisstjórnarinnar setur grundvallaratvinnugreinina í algert uppnám.

Stjórnarþingmaður fer fram á þjóðnýtingu aflaheimilda.

Ráðherra vill setja á stofn ríkisverslun með lyf.

Ráðherrar fara fram á þjóðnýtingu fyrirtækis í orkugeiranum.

Utanríkisráðherra kennir stækkunarstjóra ESB Evrópufræði.

Nei, þetta eru ekki fréttir frá Vensesúela eða Kúbu.

Þetta er Ísland í dag undir verkstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.


 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica