Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Fréttir
  • Valhöll
    Valhöll

Beinar útsendingar úr Valhöll í kvöld

Opinn fundur velferðarnefndar | Kappræður um gjaldmiðilsmál

30.5.2012

Beinar útsendingar verða í kvöld úr Valhöll frá fundi velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins og kappræðum um gjaldmiðilsmál sem ungir sjálfstæðismenn standa fyrir.

Fundur velferðarnefndar hefst kl. 20.00 þar sem alþingismennirnir Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir ræða strauma og stefnur í stóru málunum á alþingi. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarnefndar, stýrir fundinum.

Bein útsending frá fundi velferðarnefndar.

Kappræður um gjaldmiðilsmál hefjast kl. 20.00 þar sem takast á þeir Ársæll Valfells, lektor í viðskiptafræði sem talað hefur fyrir einhliða upptöku annars gjaldmiðils, og Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur sem talað hefur fyrir áframhaldandi notkun krónunnar. Fundarstjóri verður Gísli Freyr Valdórsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu.

Bein útsending frá kappræðum um gjaldmiðilsmál.

Allir velkomnir!