Videoblogg Illuga Gunnarssonar þingmanns um ráðgefandi þjóðaratkvæði.
Videoblogg þingmannsins Illuga Gunnarssonar um ráðgefandi þóðaratkvæði. Alþingi hefur samþykkt að boða til leiðbeinandi þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á stjórnarskrá Íslands. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa beitt sér gegn þessari ákvörðun og bent á ýmsa galla á þessu máli. Til dæmis hefur verið sýnt fram á að margar þeirra spurninga sem stendur til að leggja fyrir þjóðina eru óskýra. Jafnframt er verið að telja þjóðinni trú um að hún sé í raun að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá, þegar hið rétta er að einungis verður spurt hvort leggja eigi vinnu Stjórnlagaráðs til grundvallar breytingum á stjórnarskránni og Alþingi verður því með engum hætti bundið þeirri niðurstöðu sem fæst úr atkvæðagreiðslunni. Í þessu videobloggi ræðir Illugi Gunnarsson nokkur atriði sem honum finnst skipta máli í þessari mikilvægu umræðu um grundvallarlög okkar samfélags.

Reykjavik