Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Fréttir
  • olof-raeda-frett1
  • olof-raeda-frett2
  • olof-raeda-frett3

Ræða Ólafar Nordal á landsfundi

19.11.2011

Kæru landsfundarfulltrúar, félagar og vinir

Það er gífurlegur kraftur á þessum fundi eins og alltaf. Alls staðar, í öllum herbergjum, á kaffistofunni góðu og hvarvetna sitjum við félagarnir að spjalli, ráðum ráðum okkar og tökumst á, stundum hvessir en alltaf skiljum við í bróðerni. Það hefur ávallt verið styrkur okkar og það verður svo áfram.

Hér á þessum fundi sitja á annað þúsund fulltrúar -stærsta og öflugasta stjórnmálaflokks í landinu. Enginn annar flokkur endurspeglar jafnmikinn þverskurð af samfélaginu eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerir. Það er ástæða fyrir því að slagorðið „stétt með stétt“ hefur í áratugi verið eitt af grunnstefum flokksins.

Kæru félagar.

Ég ætla að biðja ykkur örskamma stund að horfa með mér fram á veginn og hugleiða hvert stefnir í heiminum okkar.

Fyrirsjáanlegt er að fólksfjölgun mun halda áfram að verða gífurleg með tilheyrandi þrýstingi á nýtingu auðlinda, vatns, orku og matvæla. Þessu mun vissulega fylgja pólitísk og efnahagsleg óvissa. Þar á ofan bætast við tækni- og upplýsingaframfarir sem við getum ekki séð fyrir.

Í þessari framtíð felast gífurleg tækifæri fyrir landið okkar – Ísland - og börnin okkar. Í þessari framtíð getum við skapað okkur gott samfélag ef rétt er á málum haldið.

Ef við sköpum heimilum og fyrirtækjunum í landinu stöðugt og hvetjandi umhverfi, höldum áfram að nýta auðlindirnar okkar á skynsaman hátt og ef við höldum áfram að mennta okkar unga fólk til að taka að sér stærri og flóknari verkefni í ört flóknari heimi.

Ísland hefur alla burði til að mæta framtíðinni bein í baki og með bros á vör. Ég held við sjáum þetta öll!

Framundan eru fjölmörg tækifæri og það er einmitt á tímum sem þessum - sem að við Sjálfstæðismenn sýnum hvað í okkur býr.

Ég segi, horfum á það sem við getum sjálf gert hér heima og byggjum á því. Þannig rísum við hratt og örugglega inn í framtíðina.

Stjórnmál virðast ekki eiga upp pallborðið nú um stundir og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki farið varhluta af þeirri gagnrýni.

Margt af því sem sagt er kann okkur að finnast ósanngjörn og ómálefnaleg gagnrýni.

Ég tel þó að við eigum alltaf að leggja við hlustir þegar gagnrýni á vinnubrögð í stjórnmálum er sett fram til að átta okkur á því hvað það er - sem veldur þessari vantrú á getu stjórnmálamanna til að takast á við viðamikil verkefni og hvað við getum gert til að bæta okkur.

Það höfum við sjálfstæðismenn líka gert þó enn séu eflaust fjölmörg tækifæri til að gera betur.

Ástæðan fyrir því að enn býr um sig áhugaleysi um stjórnmál sé sú - að ríkisstjórnin hefur ekki enn náð árangri í glímunni við kreppuna.

Í stað þess að einbeita sér að þeim verkefnum sem stuðla að því að við rísum í raun hratt og örugglega hefur allt púður farið annars vegar í hugarfóstur Vinstri grænna að skattleggja allt sem hreyfist, og hins vegar í eina stefnumál Samfylkingarinnar – að koma landinu með hraði inn í Evrópusambandið. Samband sem veit ekki í dag nákvæmlega hvernig það ætlar að vera á morgun.

Allt stjórnkerfið hefur verið undirlagt í þessi tvö mál meðan forgangsverkefnin bíða.

Fólk setur gjarnan stjórnmálaflokka og stjórnmálamenn undir sama hatt og ég ætla ekki hér að kveinka mér neitt undan því.

En ég vil hins vegar segja það alveg skýrt - að árangursleysið við stjórn þessa lands skrifast á reikning Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnar hennar. Því árangursleysi verður ekki varpað yfir á Sjálfstæðisflokkinn. Þá ábyrgð skal hún bera sjálf!

Allt frá kosningum 2009 höfum við Sjálfstæðismenn lagt fram tillögur til úrbóta í efnahagsmálum. Með því höfum við viljað leggja áherslu á að það er önnur leið, rétt leið, í boði við stjórn þessa lands. Leið skattalækkana, leið frelsis, leið kröftugs atvinnulífs þar sem ríkisforsjá og haftabúskap er hafnað.

Ríkisstjórnin hefur ítrekað hafnað og hundsað tillögum okkar - og heldur áfram á sinni ólukkansleið með alla íslensku þjóðina í eftirdragi.

Kostnaðurinn af því - að Jóhanna Sigurðardóttir þráast við að viðurkenna vanmátt sinn við stjórn landsins - mun lenda á okkur öllum. Og hefur nú þegar gert það – enda fækkar stöðugt krónunum í buddum landsmanna. Því verður að snúa við og það verður ekki gert nema með því að stefna Sjálfstæðisflokksins verði fyrir stafni þjóðarskútunnar.

Aðeins þannig mun kaupmáttur aukast - og aðeins þannig mun atvinnulífið taka við sér. Með stefnu Sjálfstæðisflokksins – sem mótuð er hér af okkur öllum – er hægt að bjóða þjóðinni upp á bjartari framtíð.

Við Sjálfstæðismenn búum að mikilli reynslu eftir atburði síðustu ára – margar þyngstu stundirnar hafa í reynd þjappað okkur saman og sýnt og sannað að þessi flokkur stendur á bjargi.

Við sáum hvernig tilteknir þingmenn annarra stjórnmálaflokka höguðu sér þegar Alþingi ákvað, undir forystu þessarar ríkisstjórnar, að ákæra fyrirverandi formann Sjálfstæðisflokksins, vin okkar Geir Haarde. Það verður þeim sem að því stöðu til ævarandi minnkunar.

Við stóðum öll þétt saman gegn því óréttlæti. Við munum áfram standa saman í því máli sem eitt og við vitum, að réttlætið mun að lokum sigra.

Kæru félagar,

Þetta kjörtímabil hefur verið annasamt. Við höfum talið það skyldu okkar að halda uppi kröftugum vörnum gegn stanslausum árásum vinstri stjórnarinnar á atvinnulífið - hvort sem litið er til sjávarútvegsins eða umgjarðar lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Við höfum staðið gegn vanhugsuðum breytingum á stjórnarskránni og að sjálfsögðu höfum við verið barist með skattgreiðendum í landinu - sem virðast hvergi vera óhultir fyrir sköpunargáfu vinstri grænna við að leggja á nýja skatta.

Við höfum mætt pólitískum andstæðingum okkar með stefnuna að vopni og með hugmyndum um lausnir. Sjálfsstæðisstefnan stendur föstum fótum eins og hún hefur ávallt gert.

Einstaka stefnumál kunna að breytast með árunum og það fellur í ykkar hlut sem landsfundarfulltrúa að hafa áhrif á það – en grundvallarhugsjónir okkar eru skýrar og frá þeim munum við hvergi að víkja.

  • Við vitum að einstaklingurinn er betur til þess fallinn en ríkisvaldið að taka ákvarðanir um eigið líf.

  • Við vitum að minni ríkisafskipti gefa bæði einstaklingum og fyrirtækjum meira svigrúm til að vaxa og dafna.

  • Við vitum að lágir skattar efla hagkerfið; og,

  • Við vitum að aukið frelsi eykur almenna hagsæld.

Frá þessu höfum við ekki vikið og munum ekki víkja.

Kæru vinir,

Tíminn er afstæður. Börnunum okkar finnst tíminn svo lengi að líða þegar þau hlakka til einhvers.

„Mamma, má ég núna setja skóinn út í gluggann?“ hefur dóttir mín litla sagt á hverjum degi síðan í byrjun nóvember. Jólin hljóta að fara koma, hugsar barnshjartað. Okkur sem eldri erum finnst tíminn hins vegar allt of fljótur að líða – en ekki alltaf. Þegar beðið er eftir árangri – líður tíminn bara alls ekki neitt.

„Minn tími mun koma,“ - sagði Jóhanna Sigurðardóttir og hann kom - en svo ætlar hann bara aldrei að fara! Allavega finnst okkur hann óvenju lengi að líða.

En kæru vinir - fátt er auðveldara fyrir okkur hér í dag en að dvelja eingöngu við hina döpru mynd - af pólitískri ANGIST núverandi ríkisstjórnar. Ríkisstjórnar sem flýr alla ábyrgð og reynir að hagræða hinu pólitíska almanaki á sínum ömurlega flótta frá vondum verkum og fráleitum fyrirætlunum.

En við skulum miklu frekar bera það fram sem við erum menn til að gangast við. Við skulum ganga til eiða við íslenskan almenning með það að sameiginlegu markmiði að komast út úr vandanum. Það tekur tíma og þrotlausa vinnu að ná árangri. Og það þýðir líka mikla vinnu að viðhalda árangri og gera betur. Ekkert gerist af sjálfu sér og ekkert gerist á svipstundu.

Það er mikið verk fyrir höndum. En með skýra stefnu leiðum við þjóðina til betri tíma. Við munum bjóða yngri kynslóðum upp á bjartari framtíð og við munum byggja landið okkar upp. Það kostar vinnu og fórnir - en það er hægt. Það má aldrei gleymast hversu miklum árangri íslensk þjóð hefur náð á örfáum áratugum.

Við höfum allt til þess að ná miklum árangri. Við höfum það í hendi okkar að snúa taflinu við. Við höfum tækifæri til að fá til baka unga fólkið sem nú eru að hverfa til útlanda og þá námsmenn sem hafa lokið háskólanámi erlendis og sjá ekki leið til að koma heim. Það er djúpstætt einkenni okkar Íslendinga að vilja vera hér. Norðanáttin æpir á okkur og kallar okkur heim – hversu einkennilegt sem það kann að hljóma. En hlutirnir þurfa líka að vera í lagi.

Við þurfum að treysta á okkur sjálf, hverfa af endalausri ríkisforsjárhyggju sem nú tröllríður öllu, lækka skattana, frelsa atvinnulífið úr klóm ríkisins, nýta auðlindirnar og hleypa krafti einstaklings framtaksins inn í atvinnulífið. Það er á þessum grunni sem við náum árangri. Dæmin sanna að á grundvelli ríkisafskipta og hárra skatta – koðnar fólk niður og þá þjóðir líka.

Góðir Sjálfstæðismenn,

Verkefni okkar á þessum fundi er treysta stefnu flokksins og búa hann, ekki bara undir átök við ríkjandi vinstri öfl, heldur að búa hann undir næstu kosningar.

Ég hef margoft ítrekað það að Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn til að vinna að góðum málum. Málum sem bæta hag heimila og fyrirtækja.

Það höfum við gert og þið munið eflaust þá vinnu sem sett var af stað vegna vanda heimilanna. Því miður skortir enn á að þar hafi verið nóg að gert enda skorti alla pólitíska forystu í því máli.

Við þurfum hins vegar að leita frekari leiða til hjálpar heimilunum. Við höfum sett fram hugmyndir og nú er það landsfundar að taka til við að meta hvernig best er að mæta þessum vanda. En gleymum því ekki, að vandi þeirra væri ekki svo stór nú, ef ríkisstjórnin hefði komið sér að verki í því að efla hér atvinnulíf og hagvöxt strax og hún tók við.

Kæru vinir,

Ég gef nú aftur kost á mér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Það hafa verið mikil forréttindi að starfa sem varaformaður síðastliðið ár og ég vil halda áfram að taka þátt í því öfluga starfi sem framundan er hjá flokknum.

Uppgjöf er ekki til í orðaforða okkar Sjálfstæðismanna og það er einmitt þess vegna sem við erum óhrædd að taka við þeim áskorunum sem á borðinu liggja. Við munum byggja upp öflugri og stærri flokk en áður, þjóðinni til heilla.

Ég hef síðastaliðið ár ferðast út um allt land og hitt sjálfstæðismenn. Ég hef notið þess að eiga fjölmörg samtöl við flokksmenn og mér finnst öllu skipta að gott samband sé á milli forystu flokksins og flokksmanna.

Kæru sjálfstæðismenn,

Í ríflega 80 ár hafa sjálfstæðismenn brugðist við nýjum aðstæðum, krefjandi kringumstæðum, kreppu, stríði, höftum, viðreisn, vinstri vetri, frjálsu vori.

En líkt og hver Íslendingur eigum við árstíðirnar fjórar: von – umburðarlyndi – kjark – og þor.


Sjálfstæðisflokkurinn hefur sannarlega þurft að reyna sitt. En hann er eina pólitíska aflið sem vill taka höndum saman við íslenskan almenning, skilyrðislaust og reynslunni ríkari.

Styrkur okkar er að horfast í augu við okkur sjálf. Við eigum svo ótrúlega margt sem sameinar okkur, einnig það sem okkur hefði fundist betur mátt fara. En nú göngum við til vorverkanna reynslunni ríkari – og staðráðin í að uppskera eins og við sáum.

Ég er sannfærð um að við komum út af þessum fundi sameinuð sveit, með skýra sýn um þau verk sem þarf að ráðast í, með skýra sýn á þá framtíð sem við viljum búa okkur sjálfum og afkomendum okkar.





 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica