Ræða Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins
Fundarstjóri, góðir landsfundargestir, kæru vinir.
Þessi landsfundur er einhver sá mikilvægasti sem við sjálfstæðismenn höfum setið. Hann er mikilvægur vegna þess ástands sem ríkir á Íslandi. Heimilin og fjölskyldurnar leggja allt sitt traust á okkur og það gerir atvinnulífið líka. Fólkið í landinu hefur gefist upp á núverandi vinstristjórn sem er að verða uppiskroppa með loforð til að svíkja. Hún hefur brugðist almenningi ítrekað og illa.
Þess vegna horfir þjóðin til okkar, til Sjálfstæðisflokksins, til hugmynda okkar, til stefnu okkar, til okkar fólks með von í brjósti um að finna hjá okkur leiðina til bjartari framtíðar. Okkar hlutverk er að láta þá von rætast.
Kæru samherjar
Það fylgir því mikil ábyrgð að vera formaður Sjálfstæðisflokksins. Að fá traust til að veita forystu þessari glæsilegu sveit karla og kvenna, ungra jafnt sem aldinna, landsbyggðarfólks jafnt sem höfuðborgarbúa, er mesti heiður sem nokkrum stjórnmálamanni á Íslandi getur hlotnast. Krafa okkar er ekki einungis sú, að formaður Sjálfstæðisflokksins geri sitt besta, krafa okkar er um árangur, að hann leiði sjónarmið flokksins og skoðanir til öndvegis í íslenskum stjórnmálum.
Ég er stoltur af þeim mikla árangri sem við höfum náð. Við höfum endurheimt það fylgi sem við töpuðum í kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn myndi samkvæmt könnunum bæta við sig ellefu þingmönnum ef gengið yrði til kosninga nú.
Þessi árangur var ekki sjálfgefinn. Við börðumst fyrir honum og munum gera áfram. Ég er þannig gerður að ég met mikils verk manna og árangur þeirra og þykist vita að sama gildi um ykkur. Þið veittuð mér traust til þess að leiða flokkinn okkar á mjög erfiðum tímum. Við vissum öll að verkefnið yrði erfitt, það duldist engum. Ég hugsaði með mér að þeim mun ver sem við stæðum að vígi þeim mun betur þyrftum við að duga. Ég ætla að rifja upp það sem ég sagði í Valhöll um kvöldið þegar úrslit kosninganna 2009 lágu fyrir. Ég sagði þá: „Við munum komast yfir erfiðleikana með kraft þjóðarinnar, bjartsýni og stefnu okkar að vopni. Það er ekki hægt að tapa með slík vopn. Við erum með fólkið, við erum með stefnuna í farteskinu til að snúa við stöðunni og við munum sækja fylgið til baka.“ Þetta hefur gengið eftir. Þennan árangur eigum við saman. Þetta er árangur okkar allra.
Barátta okkar hefur skilað sér.
Þessa baráttu hef ég leitt, kæru vinir, en verkinu er hvergi nærri lokið. Ég stend hér til að leggja minn þátt í sameiginlegum árangri okkar í ykkar dóm og til að biðja um stuðning ykkar til að fá að ljúka verkinu sem þið fóluð mér, að leiða stefnu okkar til öndvegis í landsmálunum.
Því við ætlum ekki að láta staðar numið. Við ætlum að halda áfram að styrkja okkur og tryggja þannig glæsilegan sigur í næstu kosningum. Það verkefni vil ég vinna með ykkur áfram og á þeim grunni sem lagður hefur verið.
Kæru samherjar,
Við komum hér saman til landsfundar ekki bara til þess að velja forystu heldur einnig til þess að þétta raðirnar og skerpa á stefnumálum okkar. Stefnumálum sem treyst er á að forysta flokksins fylgi eftir af öllu afli.
Ég vil hafa sagt eftirfarandi við ykkur áður en þessi landsfundur er úti:
Í setningarræðu minni fór ég yfir mína hlið Icesave málsins. Ég gekk aldrei að því sem sjálfsögðum hlut að fá þann skilning sem ég hef fundið á mínum orðum. Fyrir það er ég þakklátur, því ég tók það nærri mér þegar ég fann að flokkurinn okkar var ekki samstiga í því erfiða máli. Það var mér erfitt.
En ég legg verk mín óhræddur fram, því ég trúi því að mestu skipti að vera heill og trúr sinni sannfæringu og gera allt það sem maður telur best fyrir hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Í einu fyrirferðarmesta deilumáli á Íslandi um þessar mundir – Evrópusambandsmálinu – er það niðurstaða mín að hagsmunum okkar sé best borgið utan sambandsins. Ég tel jafnframt að það sé blekking að tala um samningaviðræður við Evrópusambandið. Það verður ekki samið um nýtt Evrópusamband sérstaklega hannað fyrir íslenska hagsmuni. Það er rúm fyrir ólíkar skoðanir í stórum flokki eins og okkar. Í því felst að allir geta talað hreint út um sína afstöðu. Ég vil vera utan Evrópusambandsins. Það, kæru vinir, er mín skoðun, mín afstaða.
Kæru samherjar,
Sumir sjá einkaframtakið sem grimmt villidýr sem þurfi að aflífa. Aðrir líta á það sem gullgæs, og eru sífellt að reyna að slátra henni. Við sjálfstæðismenn lítum hinsvegar á einkaframtakið sem viljugan klár sem skilar okkur fram á veginn. Þannig vitum við, sem störfum í Sjálfstæðisflokknum, að hagsmunir atvinnulífsins og heimilanna eru bundnir órofa böndum. Atvinnulífið er ekki er ekki eitthvert fjarlægt fyrirbæri sem hefur það eitt sér til ágætis að hægt sé að skattleggja það eins og vinstri menn tala gjarnan.
Fyrirtækin í landinu skipta þúsundum, stór og smá, og þar verða verðmætin til sem standa undir lífskjörum þjóðarinnar, menntun hennar og velferð.Árásir ríkisstjórnarinnar á atvinnulífið eru því árásir á laun fólksins, á heilbrigðisþjónustuna, á menntunina og allt það sem við erum sammála um að skipti svo miklu máli fyrir lífsgæðin í landinu. Þessi ríkisstjórn skilur ekki atvinnulífið. Þess vegna getur hún ekki nýtt tækifærin.
Góðir landsfundarfulltrúar,
Ég vil þakka Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og stuðningsfólki hennar fyrir kosningabaráttuna. Hún hefur verið heiðarleg og Sjálfstæðisflokknum til sóma. Andstæðingar okkar hafa alltaf verið sannfærðir um að í hvert sinn sem kosið er á landsfundi hljóti klofningur að vera óumflýjanlegur. Reynslan er allt önnur, eins og fyrrverandi formaður okkar kom inn á hér fyrr í dag. Við sjálfstæðismenn kunnum það að kjósa á milli manna, við kunnum það að takast á um menn og málefni. Það sundrar okkur ekki heldur styrkir okkur. Við tökumst óhrædd á, því við vitum að bönd vináttu og hugsjóna eru öllum ágreiningi yfirsterkari.
Kæru vinir, góðir sjálfstæðismenn
Þeir hagsmunir sem Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður um og hefur staðið vörð um alla tíð eru hagmunir íslensku þjóðarinnar allrar. Verkefni okkar er að leiða sjálfstæðisstefnuna til öndvegis.
Stefnan er skýr og hún hefur reynst íslensku þjóðinni farsæl. Munum að allt sem er mikilvægt og merkilegt í þessu lífi kostar vinnu og fórnir. Við göngum fús til verka, full af bjartsýni og baráttuhug.
Við höfum mikinn meðbyr, kæru félagar. Við erum aftur orðinn langstærsti flokkur landsins. Fylgið hefur aukist um 50% frá kosningum, og það er enn að aukast. Við erum aftur orðinn sá flokkur sem langflestir treysta best til að veita þjóðinni forystu. Þetta er árangur okkar á undanförnum tveimur árum.
En við erum rétt að byrja, kæru samherjar. Saman ætlum við að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í næstu kosningum. Og saman ætlum við að bæta lífskjör á Íslandi, og færa landið aftur í fremstu röð. Það eru mikil forréttindi að standa frammi fyrir slíkum tækifærum.
Ég hlakka til að fá að nýta þau með ykkur !

