Í brennidepli

Viðtöl

Ásmundur Friðriksson Bæjarstjóraefni

Á hvaða málefni leggur þú helst áherslu?

 

Mikilvægasta verk framtíðarinnar er að skapa hér í Garði ný atvinnutækifæri, ný vel launuð störf íbúum og bæjarfélaginu til hagsældar. Það verður gert með því að bæjarfélagið verði ákjósanlegur kostur fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra til að sjá Garðinn sem framtíðarmöguleika fyrir rekstur fyrirtækja.

Ekki síður er mikilvægt fyrir okkur og sveitarfélögin á Suðurnesjum að vinna að sameiginlegu iðnaðar- og þjónustusvæði á Suðurnesjum með þátttöku allra sveitarfélaganna þar sem samanlagður kraftur okkar skapar góða aðstöðu og umhverfi sem fyrirtæki sækjast í. Sameignlegar tekjur af slíku svæði geta orðið meiri en ef við bítumst um fyrirtækin hvert og eitt. Ekkert landsvæði á Íslandi er í sömu sporum og við þegar kemur að aðgengi að endurnýtanlegri  orku, samgöngum við helstu markaðssvæði innanlands og utan og góðum höfnum. Stórskipahöfn er í Helguvík og alþjóðlegur flugvöllur í innan við 20 mín akstur frá 5 sveitarfélögum. Þarna liggja okkar stóru framtíðarmöguleikar.

Áhugi minn á málefnum eldri borgara er mikill. Ég vil skapa þeim möguleika á að eyða ævikvöldi lífsins á þann hátt að við getum verið stolt af, stuðla að því að eldri borgarar geti búið sem lengst heima. Félagsaðstæður þeirra verði bættar og uppbygging á framtíðarsýn Garðvangs verði hrundið í framkvæmd.

Fjölskyldan og skólastarf er flaggskip stefnu okkar og þar verða verkin látin tala. Sjálfstæðismenn og óháðir verða með opna stjórnsýslu og bæjarbúar munu hafa greiðan aðgang að okkur. Við setjum fram óskir um lipurð í mannlegum samskiptum, til þess þarf engin háskólapróf.  Ég sem bæjarstjóri hef sýnt það í verki að ég umgengst íbúana á jafnréttisgrundvelli.

Æskulýðs-, íþrótta- og menningarmál eru mér ofarlega í huga og þeim hef ég sinnt bæði í starfi og leik alla mína starfsævi. Þar hef ég langa reynslu og vil enn frekar láta til mín taka á næstu árum.

Með fjölgun íbúa aukast tekjur sveitarfélagsins til að framkvæma þau atriði sem koma fram í stefnuskrá sjálfstæðismanna og óháðra í Garði. Í stefnuskrá listans er metnaðarfull framtíðarsýn fólks sem ætlar ekki að sitja við orðin tóm.

Sjálfstæðismönnum og óháðum í Garði er treystandi til að byggja bæjarfélag með skýra framtíðarsýn fyrir Garðinn og framtíðina.

Ásmundur Friðriksson

bæjarstjóri.

 



Lesa meira
 

Einar Jón Pálsson

 

Á hvaða málefni leggur þú helst áherslu?

Það er óhætt að segja að það sé ekki hægt að taka eitt málefni fram fyrir annað en fjölskylduvænt samfélag er mér ofarlega í huga. Til að gera Garðinn enn fjölskylduvænni þá þarf að huga að mörgum málaflokkum og má þar nefna skipulagsmál, skólamál, íþróttir og tómstundir. Ég tel að reynsla mín sem bæjarfulltrúi síðustu 8 ár, formaður Víðis síðustu 6 ár og ekki síst að vera faðir tveggja barna muni hjálpa mér að taka ákvarðanir sem eiga samhljóm með fjölskylduvænu samfélagi.

Það má ekki gleyma því sem er mikilvægast en það er að hafa atvinnu til að geta séð fyrir fjölskyldunni. Það verður mikilvægt verkefni okkar á komandi misserum að gera hvað við getum að auka atvinnu á svæðinu. Það er okkur því mjög mikilvægt að uppbygging við álverið fari á fullt skrið og skapi þannig vellaunuð störf til frambúðar. Við verðum líka að sækja fram og markaðssetja Garðinn sem vænlegan kost fyrir fyrirtæki sem vilja starfa á Suðurnesjum.

Framundan eru mörg spennandi verkefni að takast á við. Uppbygging á húsnæði Gerðaskóla hefur verið stærsta verkefni okkar á síðustu árum og mun taka nokkurn tíma í viðbót. Uppbygging á íþróttaaðstöðu mun verða fyrirferðamikil á næstu árum ásamt stækkun leikskóla. Við munum taka við málefnum fatlaðra um næstu áramót og reikna má með að málefni aldraðra muni einnig flytjast yfir til sveitarfélaganna.

Á þessarri stuttu upptalningu má sjá að framundan eru spennandi tímar í Garðinum og ég hlakka til að fá það tækifæri að takast á við þau verkefni með íbúunum.



 

Brynja Kristjánsdóttir

 

Málefni aldraðra og fatlaðra er það sem ég legg mikla áherslu á að vinna vel að.

Atvinnuskapandi uppbygging s.s eins og ný fyrirtæki og efling ferðaþjónustunnar er það sem skiptir bæjarfélagið miklu máli.

Með einstaka nátturuperlu eins og Garðskagann höfum við alla möguleika á að byggja upp öfluga ferðaþjónustu. Sú uppbygging verður ekki gerð á einu kjörtímabili heldur er um langtímaverkefni að ræða.

Að gera skólann okkar að skóla í fremstu röð er markmið sem ég mun styðja af fremsta megni.

Mikilvægt er að börnin og ungmennin okkar alist upp við bestu skilyrði.

Ég hef setið í bæjarstjórn sl. 4 ár og verið formaður bæjarráðs, setið í Velferðar-og fjölskyldunefnd og byggingarnefnd Gerðaskóla. Ég er því vel inni í öllum málefnum bæjarfélagsins.

Ég mun leggja mig fram með þessu góða fólki sem skipar D listann fyrir næsta kjörtímabil að vinna áfram vel að málefnum bæjarfélagsins og með hagsmuni allra að leiðarljósi.

 

Lesa meira
 

Gísli Heiðarsson

  

Hvaða málefni leggur þú helst áherslu á?

Þau eru mörg, mér finnst það sem vantar til að auka forvarnir er að efla íþrótta- og æskulýðsstarfið í Garðinum með ýmsum hætti.

Skólamálin eru í fínum farvegi bæði grunn, leik og tónlitarskóli, þar hefur verið tekið til í hendinn s.l. 12 ár og mikið byggt upp til að koma til móts  við fjölgun og þarfir íbúa í Garði.

Sæborg var keypt undir æskulýðsstarfið og tónlistarskólann,  við það breyttist aðstaðan til hins betra. Það þyrfti að auka fjölbreytni í  æskulýðsmálunum, reyna að stofna fleiri klúbba miðað við þarfir hverju sinni,  þó svo að það takist ekki eitt árið þá á að meta þetta á hverju ári og reyna aftur.

Íþróttalífið er aðallega fótbolti sem er undir Knattspyrnufélagsins Víðis, ég hef verið  varaformaður félagsins sl.  4 ár og því miður verð ég að segja  að það starf sem þar er  unnið mætti vera meira metið af  bæjarstjón þar sem Víðir er eina íþróttafélagið í Garði.  Við erum að missa okkar bestu leikmenn í önnur lið, Keflavík,  Njarðvík, Reynir, Gróttu og fleiri lið aðallega vegna lélegra aðstæðna,  það hefur ekkert verið gert  á svæðinu síðan grasvöllurinn var tekin í notkun árið 1984 og þá tyrftur  í sjálfboðavinnu af stjórn og leikmönnum Víðis,  þá var einnig Víðishúsið byggt að Víðismönnum og er í eigu knattspyrnufélagsins sem er einsdæmi. Við erum sennilega eitt af fáum  liðum á landinu sem er skuldlaust en erum samt langt að baki öðrum liðum í aðstöðu  og er svæðið í heild sinni bæjarfélaginu til skammar .

Ég vill beita mér fyrir því að koma þessum málum í góðan farveg, þannig að við getum verið stolt af okkar íþrótta- og æskulýðsstarfi fái ég til þess umboð frá íbúunum í næstu kosningum það er alveg á hreinu.

Kv Gísli

Lesa meira
 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica