Grein eftir Dagmar Róbertsdóttir
Virkjum menninguna í Garði
Þegar ég tók þá ákvörðun að fara í framboð fyrir sjálfstæðismenn og óháða í Garði gerði ég það ekki síst vegna áhuga á menningarmálum. Mikill áhugi er á mikilvægi menningar í okkar hópi. Við ætlum okkur að hlúa vel að þeirri menningarstarfsemi sem fyrir er og efla hana í samstarfi við Lista og menningarfélagið í Garði sem stofnað var sl. vetur. Kröftugt menningarlíf er í senn spegill samfélagsins og lifandi vettvangur þar sem tekist er á við samtímann. Í litlu bæjarfélagi eins og í Garði verðum við að búa til sterka umgjörð um menningarlífið og varðveita það.
Ég mun beita mér fyrir því að nýstofnað Lista-og menningarfélag í Garði verði hornsteinn að uppbyggingu listalífs í bænum. Stuðningur við félagið er grundvöllur að öflugu starfi þess og þeirri flóru listgreina sem þar er lögð stund á. Endurvekjum leikfélagið og byggjum upp nýjar greinar eins og kvikmyndadeild, ljósmyndadeild svo eitthvað sé nefnt. Þá verði tónlistarskólinn vagga tónlistar í Garði en þar er rekin öflug og lífleg starfsemi. Hraðað verður eins og kostur er flutningi hans í nýtt húsnæði í Gerðaskóla.
Leitum leiða til uppbyggingar atvinnutengdri ferða- og menningarstarfsemi í samfélaginu. Með samstarfi við einstaklinga og fyrirtæki og með því að auglýsa Garðinn og stuðla þannig að uppbyggingu gistiheimila og tjaldsvæðis við Íþróttahúsið eins og við sjálfstæðismenn- og óháðir bendum á í stefnuskrá okkar.
Sólseturshátíðin verði áfram okkar stærsta fjölskyldu- og menningarhátíð þar sem lögð verður áhersla á almenna þátttöku bæjarbúa og einkennum hennar haldið við.
Þróum og byggjum upp metnaðarfullt starf sem tekur mið af menningu og áhugamálum ungs fólks með því að virkja skólana, efla kennslu í myndlist og hverskonar handverki. Það verður m.a. gert með námskeiðahaldi og að fá lærða myndmenntakennara til starfa við Gerðaskóla.
Við viljum styðja frumkvæði og framtak á sviði menningarmála með því að vinna að framtíðaruppbyggingu Listasmiðju í Garði og skapa vinnuaðstöðu fyrir listamenn til að vinna að hugðarefnum sínum og verkum. Einnig viljum við vinna að því að erlendur hópur listamanna komi árlega í Garðinum eins og stefnt er að strax í haust.
Fornleifaskráning og rannsóknir verði efldar í sveitarfélaginu og áhersla lögð á varðveislu menningarminja og þær gerða aðgengilegri fyrir íbúa og ferðamenn. Við viljum styðja við merkingu áhugaverðra staða og sögulegra minja eins og einstaklingar hér í Garði hafa verið að gera á sl. árum.
Hér er um metnaðarfulla sýn mína fyrir lista-og menningarmálin og verða ekki öll tekin í einu skrefi.
Dagmar Róbertsdóttir skipar 6. sæti á lista sjálfstæðimanna og óháðra í Garði.


Reykjavik