Á hvaða málefni leggur þú helst áherslu?
Það er óhætt að segja að það sé ekki hægt að taka eitt málefni fram fyrir annað en fjölskylduvænt samfélag er mér ofarlega í huga. Til að gera Garðinn enn fjölskylduvænni þá þarf að huga að mörgum málaflokkum og má þar nefna skipulagsmál, skólamál, íþróttir og tómstundir. Ég tel að reynsla mín sem bæjarfulltrúi síðustu 8 ár, formaður Víðis síðustu 6 ár og ekki síst að vera faðir tveggja barna muni hjálpa mér að taka ákvarðanir sem eiga samhljóm með fjölskylduvænu samfélagi.
Það má ekki gleyma því sem er mikilvægast en það er að hafa atvinnu til að geta séð fyrir fjölskyldunni. Það verður mikilvægt verkefni okkar á komandi misserum að gera hvað við getum að auka atvinnu á svæðinu. Það er okkur því mjög mikilvægt að uppbygging við álverið fari á fullt skrið og skapi þannig vellaunuð störf til frambúðar. Við verðum líka að sækja fram og markaðssetja Garðinn sem vænlegan kost fyrir fyrirtæki sem vilja starfa á Suðurnesjum.
Framundan eru mörg spennandi verkefni að takast á við. Uppbygging á húsnæði Gerðaskóla hefur verið stærsta verkefni okkar á síðustu árum og mun taka nokkurn tíma í viðbót. Uppbygging á íþróttaaðstöðu mun verða fyrirferðamikil á næstu árum ásamt stækkun leikskóla. Við munum taka við málefnum fatlaðra um næstu áramót og reikna má með að málefni aldraðra muni einnig flytjast yfir til sveitarfélaganna.
Á þessarri stuttu upptalningu má sjá að framundan eru spennandi tímar í Garðinum og ég hlakka til að fá það tækifæri að takast á við þau verkefni með íbúunum.