Tryggvi Þór Herbertsson
9. þm. Norðaust.
Tryggvi Þór Herbertsson er með doktorspróf í hagfræði frá háskólanum í Árósum, með meistarapróf í sömu grein frá Háskóla Íslands og próf í iðnrekstrarfræði frá Tækniháskóla Íslands. Tryggvi er prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík (í leyfi). Hann var sérstakur efnahagsráðgjafi forsætisráðherra í bankakreppunni 2008, fyrir það var hann forstjóri Askar Capital. Árin 1995-2006 var Tryggvi forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, lektor við sama skóla 1995 til 1998, dósent 1996 til 2002 og prófessor í þjóðhagfræði 2002 til 2006.
Tryggvi hefur verið ráðgjafi tíu ríkistjórna í átta löndum á síðastliðnum fimmtán árum. Hann hefur verið ráðgjafi hjá IMF, OECD, World Bank, Evrópusambandinu og Norræna ráðherraráðinu. Hann hefur einnig verið ráðgjafi fjölmargra fyrirtækja og stofnana. Þá hefur Tryggvi setið í og stjórnað fjölda ráðherraskipaðra nefnda, verið í stjórnum einkafyrirtækja og lífeyrissjóða bæði heima og erlendis. Tryggvi hefur skrifað ellefu bækur um ýmis hagfræðileg málefni og fjölda vísindalegra ritgerða.
Tryggvi er giftur Sigurveigu Maríu Ingvadóttur og eiga þau saman fjögur börn: Mist, Halldór Reyni, Veigar og Önnu Ragnheiði.


Reykjavik