Tillögur sjálfstæðismanna í efnahagsmálum 2011
Hér er hægt að skoða Framtíðina blað með efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins í máli og myndum.
http://www.xd.is/i-brennidepli/frettir/nr/1208
Raunhæfar lausnir fyrir heimili og fyrirtæki - aukinn kaupmáttur og skattar lækkaðir
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram viðamiklar efnahagstillögur á Alþingi. Áhersla er lögð á að auka ráðstöfunartekjur heimilanna og er meginmarkmið þeirra rúmlega þrjátíu aðgerða sem felast í tillögunum að styrkja íslenskt efnahagslíf og gefa fólki von um bjartari framtíð. Verði aðgerðunum hrint í framkvæmd munu þær auka kaupmátt og bæta lífskjör allra landsmanna.
Byrði heimilanna létt
Áhersla er lögð á að auka tekjur heimilanna, ljúka endurskipulagningu skuldamála þeirra og draga úr áhrifum verðtryggingar. Lagt er til að öllum viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs verði boðið að skipta úr verðtryggðum lánum í óverðtryggð með föstum vöxtum til fimm ára. Kanna þarf með hvaða hætti er hægt að koma til móts við þá sem fengið hafa lánsveð en ekki notið úrræða 110%-leiðarinnar þrátt fyrir yfirskuldsetningu. Ef almenn úrræði dugi ekki til að standa undir skuldbindingum verði til loka ársins 2013 heimilt að skila inn fasteign. Er þar um að ræða svokallaða lyklaleið til að forðast óþarfa gjaldþrot, sem felur í sér að eigandi fasteignar afsalar viðkomandi fjármálastofnun eign sinni og falla þá niður allar kröfur í kjölfarið. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja afnema stimpilgjöld og tryggja að afskrifaðar skuldir verði ekki skattlagðar sem tekjur. Virðisaukaskattur á barnavörur lækkaður Til að lækka vöruverð og örva verslun er lagt til að tollar, vörugjöld og aðflutningsgjöld á nauðsynjavörum verði endurskoðuð. Einnig leggur þingflokkurinn til að virðisaukaskattur á barnafötum og sérstökum nauðsynjavörum til barnauppeldis verði lækkaður. Tillagan felur auk þess í sér að endurútreikningur gengistryggðra lána verði endurskoðaður til að tryggja að rétt sé gert upp og að grundvöllur vaxta- og húsaleigubóta verði styrktur í þágu þeirra sem búa við bágustu kjörin.
Almennar skattalækkanir – endurreisn atvinnulífs
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja til að skattar verði lækkaðir þannig að allar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar jafnt á heimili og fyrirtæki verði dregnar til baka á tveimur árum. Lagt er til stórátak í fjárfestingum, framkvæmdum og atvinnusköpun á öllum sviðum atvinnulífsins. Endurgreiðsla tryggingagjalds í tvö ár fyrir hvert nýtt starf sem fyrirtæki ráða í af atvinnuleysisskrá, er liður í að rjúfa vítahring langtímaatvinnuleysis. Í þingsályktunartillögunni er ýtarlega útfært hvernig hægt er að skapa störf í samfélaginu, styrkja atvinnulífið og leysa vanda fyrirtækjanna, stórra jafnt sem smárra. Með réttum aðgerðum megi reikna með að fjárfesting aukist um allt að 250 milljarða á næstu tveimur árum og þar með fjölgi störfum verulega. Þá er lögð áhersla á að dregið verði úr umsvifum hins opinbera, hagstjórnin verði endurskipulögð, starfsemi fjármálamarkaða endurskoðuð og traust á efnahagslífinu endurvakið.
Framtíðin á hvert heimili
Samhliða því að leggja efnahagstillögurnar fram á Alþingi hefur Sjálfstæðisflokkurinn gefið út blað um efnahagshorfur til framtíðar, þar sem tillögurnar og áhrif þeirra eru kynnt og útskýrð í máli og myndum. Framtíðinni, blaði Sjálfstæðisflokksins verður dreift inn á hvert heimili í landinu í dag. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins standa fyrir fundum um land allt næstu vikur til þess að kynna tillögurnar fyrir landsmönnum.
Hér fyrir neðan eru efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins frá 2010.
